Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals. Í breytingunni felst að bætt er við tengistíg frá Rafstöðvarvegi 1A (jarðhús ofan Ártúnsbrekku) og til suðurs að núverandi stofnstíg sunnan aðkomuvegar að Rafstöðvarvegi 1A, samkvæmt uppdr. Landslags dags. 1. júní 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.