Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar, mótt. 16. október 2016, varðandi hækkun hússins á lóð nr. 54 við Vesturgötu um eina hæð og ris. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.