Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. mars 2014 var lagt fram bréf Valtýs Sigurðssonar hæstaréttalögmanns dags. 24. mars 2014 varðandi bílastæði á lóðinni nr. 35 við Tjarnargötu. Einnig er óskað eftir að kantsteinar verði færðir til fyrra horfs. Erindinu var vísað til umsagnar skrifsstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 8. apríl 2014.