Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 10. janúar 2016, ásamt bréfi Guðmundar Karls Gautasonar f.h. Northern Lights Car rental, ódags. þar sem óskað er eftir endurskoðun á umsögn um staðsetningu fyrir rekstur bílaleigu að Smiðshöfða 9. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2017.