Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja bílaverkstæði, stálgrindarhús klætt steinullareiningum á kjallara sem fyrir er, á Grettisgötu 87 á lóð nr. 118 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2018.
Stærð, áður byggður kjallari: 794,5 ferm., 2.140,4 rúmm. Nýbygging: 814,2 ferm., 3.985,4 rúmm. Samtals: 1.608,7 ferm., 6.125,8 rúmm. Gjald kr. 11.000