Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi, auka leyfilegan gestafjölda í 45 og breyta skilgreiningu veitingastaðar í flokk II, teg. c í rými 0101 í húsi á lóð nr. 116 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2018.
Gjald kr. 11.000