Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2020 var lögð fram fyrirspurn
THG Arkitekta ehf.
dags. 19. febrúar 2020 ásamt bréfi dags. 19. febrúar 2020 um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðanna nr. 3 og 5 við Pósthússtræti sem felst í að breyta 1. hæð og kjallara hússins í mathöll og endurbyggja bakbyggingu í porti og stækka hana með léttri yfirbyggðri viðbyggingu í átt að Hafnarstræti, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 10. febrúar 2020. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. febrúar 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2020.