Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2017 var lögð fram umsókn Höfðahótels ehf. mótt. 21. nóvember 2017 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Höfðatorgs (Borgartún 8-16A). Í breytingunni felst að setja inn ákvæði þar sem skýrt kemur fram heimild um að samnýta bílastæði í bílakjallara. Einnig er lögð fram greinargerð PKdM dags. 21. nóvember 2017 ásamt fylgiskjölum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.