Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. maí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 1. áfanga nýbyggingar á svokölluðum Frakkastígsreit, steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús með fimmtán íbúðum á efri hæðum, verslun og þjónustu á jarðhæð og bílakjallara á sameinaðri lóð nr. 8 við Frakkastíg. Meðfylgjandi er greinargerð um algilda hönnun dags. 5. maí 2014, orkurammi dags. 1. maí 2014. Stærðir: Kjallari 426 ferm., 1. hæð 1085,1 ferm., 2. hæð 398 ferm., 3. og 4. hæð 397 ferm., 5. hæð 324,2 ferm. Samtals 3.027,3 ferm., 9.522,5 rúmm. Gjald kr. 9.500