Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Blómaþings ehf. dags. 8. október 2014 varðandi breytingu a deiliskipulagi reits 1.172.1, Frakkastígsreits, vegna lóðarinnar nr. 8 við Frakkastíg. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og færslu á byggingarmagni innan lóðar, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 30. október 2014. Tillagan var auglýst frá 28. nóvember 2014 til og með 9. janúar 2015. Engar athugasemdir bárust.