Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 3. áfanga Frakkastígsreits, að byggja nýbyggingu á Laugavegi 41B sem í verður sameiginlegt stiga- og lyftuhús, rífa stigahús á bakhlið Laugavegs 43, stækka til norðurs og hækka þak á norðurhlið, setja kvisti á Laugaveg 45, tengja efri hæðir Laugavegs 43 og 45 við nýbyggingu og innrétta skrifstofur á efri hæðum og verslanir á jarðhæðum á lóð nr. 8 við Frakkastíg. Samtals 3. áfangi: 1.429,1 ferm., 4.426,8 rúmm. Gjald kr. 9.823