Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. desember 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka ris, byggja kvisti, gera svalir og innrétta íbúð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 21 við Bergþórugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. janúar 2015.