Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Plúsarkitekta ehf.
mótt. 28. september 2017 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.171.2 vegna lóðarinnar nr. 12 við Bankastræti. Í breytingunni felst að koma fyrir geymslu, sorpgerði og svölum á nýbyggingu á baklóð, samkvæmt tillögu
Plúsarkitekta ehf.
dags. 30. október 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 21. nóvember 2017 til og með 19. desember 2017. Engar athugasemdir bárust en tölvupóstur barst frá Guðmundi Hjaltasyni dags. 11. desember 2017 og húsfélaginu Ingólfsstræti 4, dags. 19. janúar 2017 þar sem óskað er eftir frekari gögnum til upplýsinga. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2018. Tillagan var grenndarkynnt að nýju frá 5. apríl 2018 til og með 7. maí 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Benóný Ægisson ásamt fylgiskjölum dags. 7. maí 2018.