Lögð fram umsókn Plúsarkitekta ehf. mótt. 28. september 2017 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.171.2 vegna lóðarinnar nr. 12 við Bankastræti. Í breytingunni felst að koma fyrir geymslu, sorpgerði og svölum á nýbyggingu á baklóð, samkvæmt uppdr. Plúsarkitekta ehf. dags. 21. september 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.