Á fundi skipulagsfulltrúa 16. maí 2014 var lögð fram fyrirspurn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 14. maí 2014 um hótelíbúðir í húsinu á lóðinni nr. 16A við Grensásveg. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi +Arkitekta, dags. 22. maí 2014 ásamt uppdráttum, mótteknum 22. maí 2014, þar sem fram kemur að ekki er um að ræða hótelíbúðir eins og fram kom á fundi skipulagsfulltrúa, dags. 16. maí sl. heldur sé um að ræða hótel. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. maí 2014.