Á fundi skipulagsfulltrúa 31. janúar 2014 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 43 við Barónsstíg. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf. dags. 23. janúar 2014. Tillögunni var frestað og er nú lögð fram að nýju.