Lögð fram umsókn
Plúsarkitekta ehf.
dags. 13. nóvember 2020 varðandi breytingu á hverfisskipulagi fyrir Árbæ skilmálaeiningu 7-2-4 vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rofabæ. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar ásamt því að uppskipting kjallara í bílakjallara og önnur rými er tekin út og texti um spennistöðvar við nýbyggingu er tekinn út, samkvæmt uppdr.
Plúsarkitekta ehf.
dags. 12. nóvember 2020.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.