Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. október 2018 var lögð fram umsókn Margrétar Leifsdóttur dags. 12. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbæjar-Seláss vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rofabæ. Í breytingunni felst að heimilað er niðurrif húsa á lóðinni og ný uppbygging, samkvæmt uppdr. A arkitekta ehf. dags. 26. október 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti Margrétar Leifsdóttir dags. 8. janúar 2018 þar sem umsókn er dregin til baka.