Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja og fjögurra hæða steinsteypt fjölbýlishús með 31 íbúð, einangrað og klætt að utan, á kjallara með 27 bílastæðum, 38 hjólastæðum og atvinnu- og þjónusturýmum á hluta jarðhæðar á lóð nr. 7-9 við Rofabæ. Erindi fylgir minnisblað um hljóðráðgjöf frá Myrru hönnunarstofu dags. 23. febrúar 2021 og brunavarnartexti frá Lotu, dags. 29. mars 2021. Stærð, A-rými: 3.894,2 ferm., 12.290,6 rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. Samtals A- og B-rými: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 12.100