Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Margrétar Leifsdóttur, mótt. 28. júní 2017, um uppbyggingu á lóð nr. 7-9 við Rofabæ, samkvæmt skissum. Einnig er lögð fram greinargerð Arkibúllunnar, dags. 28. júní 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. júlí 2017.