Lögð fram umsókn Margrétar Leifsdóttur dags. 12. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbæjar-Seláss vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rofabæ. Í breytingunni felst að heimilað er niðurrif húsa á lóðinni og ný uppbygging, samkvæmt uppdr. A arkitekta ehf. dags. 26. október 2018.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.