Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýbyggingu með verslun á jarðhæð og gististað í flokki V, teg. a - hótel á efri hæðum fyrir 116 gesti í 58 herbergjum og veitingastað í flokki II á lóð nr. 55 við Laugaveg. Stærð A-rými: 2.070,1 ferm., 6.758 rúmm. B-rými x ferm., x rúmm. C-rými x ferm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. október 2016 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. október 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 27. maí 2016. Gjald kr. 10.100