Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. apríl 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að útbúa aðstöðu til útiveitinga við veitingastað á baklóð hússins nr. 55 við Laugaveg. Jafnframt er spurt um hámarksfjölda gesta á veitingastaðnum og hvort koma mætti fyrir ferðasalernum við staðinn yfir sumartímann. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2013.
Svar
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2013 eru ekki gerðar skipulagslegar athugasemdir við leyfi til útiveitinga til kl. 22:00 á kvöldin Ekki er fallist á staðsetningu ferðasalerna á lóðinni.