Lögð fram umsókn Gunnars Bergmanns Stefánssonar arkitekts f.h. L55 ehf., mótt. 17. maí 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.173.0 vegna lóðarinnar nr. 55 við Laugaveg. Í breytingunni felst að breyta kvistum á 5. hæð. Kvistur er minnkaður og tveimur nýjum kvistum er bætt við. Öll útisvæði verða nýtt sem græn svæði. Einnig verður byggingarmagni breytt í 3. hæðir og kjallara á öllum bakhluta byggingarinnar. Op verður gert í miðri byggingunni og þar með verði heildarbyggingarmagn óbreytt, samkvæmt uppdr. Gunnars Bergmanns Stefánssonar arkitekts, dags. 12. maí 2016. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnununar Íslands, dags. 27. maí 2015.