Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Heru Sveindóttur, mótt. 9. apríl 2017, um að breyta notkun bílgeymslu á lóð nr. 50A við Skipholt í fótaaðgerðastofu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. maí 2017.