Fyrirspurn
Lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar dags. 10. febrúar 2021 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Rafnar ehf. um starfsleyfi fyrir nýja starfsemi á lóð nr. 11 við Geirsgötu. Óskað er eftir umsögn um hvort starfsemin sé í samræmi við skipulag svæðisins. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. febrúar 2021.