Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. nóvember 2020 var lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf. dags. 18. nóvember 2020 ásamt bréfi ódags. um rekstur á starfsemi sem felur í sér þróun og framleiðslu trefjabáta í húsinu á lóð nr. 11 við Geirsgötu. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir af framleiðsluferli
Rafnars ehf.
ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. desember 2020.