Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. ágúst 2016 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 20. júlí 2016, þar sem ekki er gerð athugasemd við birtingu auglýsingu um samþykkt deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda en áður þarf að vinna deiliskipulagsbreytingu er sýnir þann hluta gildandi deiliskipulags sem helst óbreytt. Málsmeðferð breytingarinnar telst vera hluti af málsmeðferð framangreinds deiliskipulags og birta á gildistöku breytingarinnar samhliða gildistöku hins nýja deiliskipulags. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.