Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Vals Magnússonar, mótt. 1. apríl 2016, um að breyta notkun rýmis í kjallara hússins á lóð nr. 1 við Hallveigarstíg sem er í dag veislusalur í gististað. Einnig er lagt fram bréf Vals Magnússonar f.h. Yn ehf., ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. apríl 2016.