Lögð fram umsókn
PARAS ehf.
dags. 18. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.2, Laugavegs- og Skólavörðustígsreits, vegna lóðarinnar nr. 1 við Hallveigarstíg. Í breytingunni felst að grafið er út á svæði á norðurhlið byggingar sem verður með sama gólfkóta og kjallari. Svæðið verður útisvæði og hugsað sem setsvæði fyrir veitingaaðstöðu og sem aðgengi að utan og beint niður í kjallara. gert er ráð fyrir tröppum vestanmegin frá, samkvæmt uppdr. A arkitekta dags. 18. apríl 2018. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa ódags.