Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. febrúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Vektors, hönnun og ráðgjöf ehf. dags. 17. febrúar 2022 ásamt bréfi dags. 17. febrúar 2022 um breytingu á notkun 3. hæðar hússins á lóð nr. 1 við Hallveigarstíg úr skrifstofu í gististað í flokki II, samkvæmt uppdr./grunnmynd 3. hæðar dags. 10. febrúar 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2022.