Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 21. janúar 2011 var lagt fram erindi Kjartans Rafnssonar dags. 19. janúar 2011 varðandi breytingu á deiliskilpulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 76 við Einarsnes. Í breytingunni felst að byggja bílgeymslu á lóðinni ásamt viðbyggingu við kjallara hússins, samkvæmt uppdrætti K.J. gönnun ehf. dags. 10. janúar 2011. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 26. janúar 2011.