Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi Daníels B. Sigurgeirssonar dags. 13. mars 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 76 við Einarsnes. Í breytingunni felst hækkun á þaki og að byggja við húsið til norðurs, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar HR ehf. dags. 12. mars 2013. tillagan var grenndarkynnt frá 25. mars til og með 23. apríl 2013. Engar athugasemdir bárust.