Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 29. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. október 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta gistirými í eign 0201 sem skráð er iðnaðarhúsnæði á annarri hæð atvinnu- og íbúðahússins á lóðinni nr. 56 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. desember 2013.