Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. janúar 2019 var lögð fram fyrispurn Viðars Norðfjörðs Guðbjartssonar mótt. 2. nóvember 2018 um breytingu á notkun rýma í húsinu á lóð nr. 64 við Grettisgötu úr verslun/atvinnuhúsnæði í íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25, janúar 2019.