Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Arnars Þórs Jónssonar dags. 3. september 2021 ásamt bréfi dags. 30. ágúst 2021 um fjölgun íbúða í húsinu á lóð nr. 16 við Brautarholt úr 16 íbúðum í 33 íbúðir og hafa inndregna 5. hæð eins og er við Brautarholt 18 og 20, samkvæmt tillögu Arkís arkitekta ehf. dags. 20. ágúst 2021. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021. Erindið er nú lagt fram að nýju ásamt uppfærðri tillögu Arkís arkitekta ehf. dags. 20. desember 2021 (tillaga II) að breytingu á núverandi atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði með 20 íbúðum í stað 33 íbúða (tillaga l), hafa inndregna 5. hæð ásamt frekari útfærslu inngarðs í porti. Í uppfærðri tillögu er gert ráð fyrir mögulegri útfærslu íbúða ofan á núverandi spennistöð Veitna ohf. við Traðarholt. Áfram er gert er ráð fyrir þjónusturýmum á jarðhæð við götuhliðar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. janúar 2022. Lagt fram að nýju ásamt uppfærðri tillögu (tillaga III) dags. 3. mars 2022 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2022.