Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að bílskúr hefur verið breytt í íbúð við hús á lóð nr. 32 við Fálkagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. janúar 2017
Gjald kr. 10.100