Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2015 var lögð fram fyrirspurn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 29. apríl 2015 um gerð deiliskipulagsbreytingar vegna lóðarinnar nr. 11 við Þórsgötu sem felst í að skilgreina lóðina sem lóð undir íbúðarhúsnæði eða flutningshús í stað lóðar fyrir leiksvæði. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn sdkipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.