Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvílyft fjölbýlishús úr timbri með þremur íbúðum á lóð nr. 50 við Efstasund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2017.
Stærð mhl. 01, A-rými: 261,6 ferm., 782,8 rúmm. B-rými: 31,6 ferm., 126,9 rúmm. hl. 01 samtals: 293,2 ferm., 1.004,2 rúmm. Gjald kr. 11.000