Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. október 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN033899 m.s.br., salerni breytt í geymslu, svalir stækkaðar, þak hækkað, fallið frá hallandi þakhluta meðfram útvegg aðliggjandi nágranna nr. 19 við Ásvallagötu og frágangur þaks við lóðarmörk húss á lóð nr. 21 við Ásvallagötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2022.