Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2017 var lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar, mótt. 12. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háaleitisbrautar-Hvassaleitis vegna lóðarinnar nr. 68 við Háaleitisbraut. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit, samkvæmt uppdr. Kristjáns Bjarnasonar, dags. 3. mars 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt tölvupósti dags. 13. október 2017.