breyting á deiliskipulagi
Lyngháls 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 664
12. janúar, 2018
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram ný umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar f.h. eigenda húsnæðis við Lyngháls 10 dags. 10. janúar 2018 ásamt bréfi dags. 10. janúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 10 við Lyngháls. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall á lóðinni verði leiðrétt í samræmi við núverandi byggingar og verður 1,0 og skilgreina byggingarreit utan um núverandi byggingar á lóðinni, samkvæmt uppdrætti Teiknistofunnar Storð ehf. dags. 10. janúar 2018.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.

110 Reykjavík
Landnúmer: 111051 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020084