Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 11. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að gera bruggverksmiðju í mhl. 02 rými 0101 sem í dag er vörugeymsla og fá samþykktar útitröppur og áður útfærða gönguhurð á austur hlið á húsinu á lóð nr. 31 við Skipholt. Erindi var grenndarkynnt frá 21. júlí 2017 til og með 18. ágúst 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Stefán S. Guðjónsson, dags. 17. ágúst 2017. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. júlí 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2017. Gjald kr. 11.000