Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2018 var lögð fram fyrirspurn Gunnlaugs Jónassonar dags. 4. apríl 2018 ásamt bréfi dags. 4. apríl 2018 varðandi stækkun hússins á lóð nr. 31 við Skipholt, samkvæmt uppdr. Teikning.is dags. 3. apríl 2018. Einnig er lagt fram bréf Listaháskóla Íslands dags. 22. mars 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2018.