Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 13. júní 2019 þar sem stofnunin getur ekki tekið endanlega afstöðu til efnis deiliskipulagsins fyrr en skilmálar í kafla 6.6.2 um hljóðvist verði skýrari með hliðsjón af umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 4. apríl 2019, skilmálar varðandi bílgeymslur og kjallara í kafla 6.15 taki mið af umsögn Vegagerðarinnar dags. 4. apríl 2019 og lóðamörk komi skýrt fram á uppdrætti og vísa þarf í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga í stað 2. mgr. 43gr.