Lögð fram fyrirspurn/greinargerð Jvantspjker dags. 17. október 2021 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Héðinsreit vegna lóðarinnar nr. 64 við Vesturgötu og Ánanaust. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni á byggingarreit V1 sem nemur einni þakíbúð á inndreginni 7. hæð við Mýrargötu næst norðurlóðarmörkum Seljavegar 2. Einnig eru lagðar fram þrívíddarmyndir ódags. og skuggavarpstúdíur ódags.