Bygging garðskála
Drafnarstígur 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 569
15. janúar, 2016
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja garðskála úr timbri á steyptum sökkli, og gerð er grein fyrir kjallara undir einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Drafnarstíg. Erindi var grenndarkynnt frá 24. nóvember til og með 22. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Magnússon, mótt. 11. desember 2015, Philippe Urfalino, dags. 22. desember 2015 og Guðrún Kristinsdóttir, dags. 22. desember 2015. Einnig er lögð fram bréf Birgis Daníels Birgissonar, dags. 11. og 12. janúar 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2016 og er nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. desember 2014 fylgir erindinu. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. maí 2014, samþykki eiganda, samþykki lóðarhafa Drafnarstígs 5A og Bræðraborgastígs 12 dags. 6. október 2015 og tölvupóstur frá umsækjanda dags. 22. október 2015 þar sem óskað er eftir að erindið verði grenndarkynnt.
Stækkun viðbygging: 11,3 ferm., 28,2 rúmm. Stækkun vegna áður gerðs kjallara: 26,6 ferm. 53,2 rúmm. Samtals: 37,9 ferm., 81,4 rúmm. Gjald kr. 9.500 + 9.823
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009205