Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. maí 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 18. maí 2017, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna leyfis A-campers ehf. til reksturs ökutækjaleigu með gildistíma frá 2. júní 2016, verið er að flytja starfsemi ökutækjaleigunnar frá Faxafeni 12 að Dugguvogi 15. Sótt er um leyfi fyrir 10 ökutækjum til útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2017.