Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 7. október 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að hækka með því að byggja inndregna þakhæð ofan á atvinnuhús nr. 15 á lóð nr. 13-15 við Dugguvog. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 11. október 2011.