Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar, steinsteypta viðbyggingu með hefðbundnu timburþaki við leikskóla á lóð nr. 1 við Þorragötu.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hörpugata 4a, 6, 8, 10, 12 og 14.